Hvernig á að virkja Internet Connection Sharing(ICS)

-Eftir Svavar Kjarrval

Fyrst skulum við gera nauðsynlegar breytingar á þeirri tölvu sem er tengd á netinu(netþjónn).
Ég miða þessar leiðbeiningar við Windows 2000 og Windows XP því ég veit ekki hvort ICS er á öðrum Windows stýrikerfum.

Fyrst skulum við gera nauðsynlegar breytingar á netþjóninum...

1. Farðu í stjórnborðið á tengingunni. Ef þú sérð táknmyndina fyrir tenginguna, hægri-klikkaðu á hana og farðu síðan í status
eða...
ýttu á Start, síðan Control Panel og síðan Network Connections. Þar hægri-klikkarðu á Internet-tenginguna og velur status.
Þar ættirðu að sjá þetta:



2. Núna áttu að klikka á Properties, síðan Advanced og færð út þennan glugga:


Hérna á að vera hakað við "Allow other network users to connect through this computer's Internet connection". Neðsti valmöguleikinn í valmyndinni er ekki nauðsynlegur en ég ráðlegg ekki að hafa hann hakaðann nema þú getur treyst öllum sem tengjast í gegnum tölvuna.


Ef þú vilt ráða IP tölu þinni sjálf(ur) en ekki hafa þessa leiðinlegu 192.168.0.1 IP tölu, þá heldurðu áfram að lesa. Annars hopparðu á seinasta skref.

3. Endurtaktu skref 1 nema núna velurðu "Local Area Connection" í staðinn fyrir Internet tenginguna. Þá ættirðu að fá þennan glugga:


4. Finndu Internet Protocol (TCP/IP) undir "This connection uses the following items:" og tvíklikkaðu á það.
Ef þú sérð það ekki, veldu "Install...", síðan "Protocol", síðan "Add...", manufacter er Microsoft og þarna ætti "Internet Protocol (TCP/IP)" að vera. Ýttu síðan á "OK". Tvíklikkaðu núna á það.

Svona ætti glugginn nokkurn veginn að vera stilltur. Svona áttu að stilla gluggann:
IP address = Þetta er IP talan sem þú vilt að netþjónninn ætti að vera stilltur sem. Ég mæli með þessari IP tölu því hún er stutt og mjög auðveld að muna. Það er ekki hægt að velja hvaða IP tölu sem er og það má ekki vera sama IP talan sem þú notar til að tengjast netinu.
Það skiptir engu máli hvaða Subnet mask þú vilt vera á en það verður að vera það sama á öllum vélum sem tengjast við þig. Hitt á að skilja eftir tómt.


Núna förum við í tölvuna sem tengist við hina:


5. Farðu í Local Area Connection á tölvunni sem tengist í gegnum netþjóninn. Endurtaktu skref 3 og 4.


6. Svona áttu að stilla þetta:
IP address = Notaðu sama IP address og á hinni NEMA breyttu talnaröðinni á eftir seinasta punktinum í eitthvað annað.
Subnet mask = Hafðu það nákvæmlega það sama og á netþjóninum, annars mun þetta ekki virka.
Default gateway = Skrifaðu IP töluna á netþjóninum hingað.
Preferred DNS server = Skrifaðu IP töluna á netþjóninum hingað

7. Endurræstu báðar tölvurnar. Til öryggis, ræstu netþjóninn fyrst og síðan hinar tölvurnar.